Hið fullkomna ferðataska ætti að vera þægileg í notkun en samt falleg og stílhrein. Wings fylgir nýjustu tískustraumum í hönnun Swallow ferðatöskurnar.
Unnin úr hágæða ABS Plus plastefni, flott hönnun með Wings lógó sem er bæði framan á og neðri hlutann aftan á töskunni.
Létt og þægileg ferðataska, með tveggja lenginga telescopic handfangi. Með gúmmí grip á utanverðu haldfangi og TSA númera læsingu. Sterkar og endingagóðar. Með fjórum tvöföldum 360° gúmmí hjólum fyrir stöðugleika og léttleika í allar áttir. Innvolsið er í dekkri lit og rennt á milli til þess að skapa tvö góð hólf.
TSA lásar eru sérstakir að því leyti að þeir gera tollinum auðvelt fyrir að opna og loka töskunum án þess að skemma þær. Tollurinn er með sérstakan lykil til að opna þessa tegund af lásum. Til dæmis er farið fram á að vera með TSA lás þegar ferðast er til USA, Canada, Japan, Braziliu eða Ástralíu ef að þú hyggst ferðast með læsta tösku.
- Ytra byrði – ABS (Akrylonitryl, Butadien, Styren)
- Stærðir á hæstu punktum:
- Large ferðataska: 75,5x50x29 cm, 97l, 3,9kg
- Medium ferðataska: 66x43x24 cm, 63l, 3,1kg
- Small ferðataska: 55,5x38x21 cm, 38l, 2,5kg
- Large og Medium taskan eru stækkanleg um +5cm
- 4 hjól með 360°snúning
- TSA talna lás
- Tveggja lenginga telescopic haldfang
- Vandað invols með hólfum og öryggis teygjum til þess að festa farangur
- Tveggja ára verksmiðju ábyrgð
Wings vörurnar eru með 24 mánaða verksmiðjuábyrgð. Hvort sem það er ytra eða innra byrði, allir gallar sem koma upp eru í ábyrgð ef um eðlilega notkun er að ræða.
Ábyrgðin gildir ekki um eftirfarandi:
- Skemmdir sem verða á töskunni hvort sem um er að ræða óvart eða með ásetningi. T.d vegna bruna, skorið sé í töskuna, rifin eða almennt slit sem verður til við notkun.
- Skemmdir sem verða á töskum í flugi eða við annan flutning. Þá skal hafa samband við viðkomandi flutningsaðila og fá töskuna bætta. (ATH það þarf að fylla út skýrslu á viðkomandi flugvelli ef taska skemmist í flugi!)
- Litabreytingar vegna óhóflegrar UV geislunar af völdum sólar eða aðrar skemmdir af manna völdum.