Nýju Murre ferðatöskurnar frá Wings.
Polipropylen tryggir langlífi á þessum töskum. Þetta efni er mikið notað í hágæða ferðatöskum. Ferðatöskur sem eru unnar úr þessu efni eru harðar, höggþolnar og eru með hátt þol gegn hverslags álagi eins og eftir flutningar. Þessar töskur þola einnig bleytu og hitastigsbreytingar betur en ferðatöskur sem eru framleiddar úr ABS plastefni.
Auk mjög endingargóðu efni eru þessar ferðatöskur með TSA talnalás. Þessir lásar eru sérstakir að því leyti að þeir gera tollinum auðvelt fyrir að opna og loka töskunum án þess að skemma þær. Tollurinn er með sérstakan lykil til að opna þessa tegund af lásum. Til dæmis er farið fram á að vera með TSA lás þegar ferðast er til USA, Canada, Japan, Braziliu eða Ástralíu ef að þú hyggst ferðast með læsta tösku.
Murre koma í fallegum litum með samlitum rennilás og svörtum aukahlutum, ferðatöskurnar eru frábærar í lengri sem og styttri ferðalög. Minnsta taskan er standard handfarangurs taska, medium og large ferðatöskurnar gera þér kleypt að pakka öllum þínum fötum, skóm og snyrtivörum á þæginlegan máta. Polipropylen ferðatöskur eru tilvaldar sem innritaður farangur, þar sem styrkur þeirra og eftirgefanleiki er það mikið að þú þarft ekki að vera hræddur um að töskurnar komi skemmdar á bandið eftir flug.
Nánar um töskurnar:
- Ytra byrði – Polipropylen
- Stærðir á hæstu punktum:
- Medium ferðataka: 66 x 42 x 26cm, 3kg, 63 l
- 4 legu hjól með 360° snúning
- TSA lock talnlás
- Tveggja lengingar telescopic handfang
- Vandað invols með hólfum og öryggis teygjum til þess að festa farangur ásamt tveimur renndum vösum
- 10 ára verksmiðju ábyrgð
Ábyrgð:
Wings vörurnar eru með 24 mánaða verksmiðjuábyrgð. Hvort sem það er ytra eða innra byrði, allir gallar sem koma upp eru í ábyrgð ef um eðlilega notkun er að ræða.
Ábyrgðin gildir ekki um eftirfarandi:
-
Skemmdir sem verða á töskunni hvort sem um er að ræða óvart eða með ásetningi. T.d vegna bruna, skorið sé í töskuna, rifin eða almennt slit sem verður til við notkun.
-
Skemmdir sem verða á töskum í flugi eða við annan flutning. Þá skal hafa samband við viðkomandi flutningsaðila og fá töskuna bætta. (ATH það þarf að fylla út skýrslu á viðkomandi flugvelli ef taska skemmist í flugi!)
-
Litabreytingar vegna óhóflegrar UV geislunar af völdum sólar eða aðrar skemmdir af manna völdum.