Lúxus ferðatöskur frá fyrirtækinu WINGS hannaðar fyrir kröfuhörðustu viðskiptavinina. Nútímaleg hönnun, léttar töskur unnar úr sterku og rispheldu Policarbon*, með tveggja lenginga telescopic handfangi. Með gúmmí grip á utanverðu handfangi og númera læsingu. Sterkar og endingagóðar. Með fjórum 360° gúmmí hjólum fyrir stöðugleika og léttleika í allar áttir og hægt að taka hjólin af minnstu töskunni svo að hún passi í handfarangri hjá lágjalda flugfélögum. Innvolsið er í dekkri lit og rennt á milli til þess að skapa tvö góð hólf.*Policarbon er mjög harðgert, hágæða efni, plastefni sem er mjög sterkt og höggþolið en samt mjög létt.
- Ytra byrði -Policarbon
- Stærðir á hæstu punktum:
- X-small ferðataska: 51x33x19 cm, 28 lítrar, 2,1kg, minnkar um 8cm þegar hjólunum er smellt af.
- 4 hjól með 360°snúning
- Talna lás
- Tveggja lenginga telescopic handfang
- Vandað invols með hólfum og öryggis teygjum til þess að festa farangur
- Tveggja ára verksmiðju ábyrgð
Meira um ábyrgðina:
Takk fyrir að velja Wings ferðatöskur, við vonum að ferðatöskurnar frá okkur verði góður ferðafélagi um ókomin ár.
Notkun:
Notist á viðeigandi hátt. Fyllið ekki töskuna með þungum hlutum sem eru óreglulegir í laginu. Passið að pakka ferðatöskuna á sem jafnastan hátt. Ef að skemmdir verða á töskunni mælum við eindregið með að gert sé við hana hjá viðurkenndum viðgerðaraðila. Þrífið með mjúkum klút, vatni og sápu (hitastig 20-40°C).
Ábyrgð:
Wings vörurnar eru með 24 mánaða verksmiðjuábyrgð. Hvort sem það er ytra eða innra byrði, allir gallar sem koma upp eru í ábyrgð ef um eðlilega notkun er að ræða.
Ábyrgðin gildir ekki um eftirfarandi:
- Skemmdir sem verða á töskunni hvort sem um er að ræða óvart eða með ásetningi. T.d vegna bruna, skorið sé í töskuna, rifin eða almennt slit sem verður til við notkun.
- Skemmdir sem verða á töskum í flugi eða við annan flutning. Þá skal hafa samband við viðkomandi flutningsaðila og fá töskuna bætta. (ATH það þarf að fylla út skýrslu á viðkomandi flugvelli ef taska skemmist í flugi!)
- Litabreytingar vegna óhóflegrar UV geislunar af völdum sólar eða aðrar skemmdir af manna völdum.