Lýsing

Wings Lorikeet mjúkar ferðatöskur.

Ertu að fara í sólina? Besti ferðafélaginn er frá Wings! Lorikeet eru léttustu ferðatöskurnar frá Wings, unnar úr gæða efnum.

Lorikeet ferðatöskurnar eru með stillanlegu telescopic haldfangi sem er stillanleg í þá hæð sem hentar þér, með fjórum tvöföldum 360° gúmmí hjólum fyrir stöðugleika og léttleika í allar áttir. Léttar og stöðugar töskur sem auðvelt er að ýta við hlið sér í staðinn fyrir að draga á eftir sér.

Lorikeet töskurnar eru með margar sniðugar lausnir, Vasar utan á sem er gott fyrir hluti sem þarf að komast í án fyrirhafnar. Large og medium töskurnar eru stækkanlegar.

Large, medium og small töskurnar eru allar stækkanlegar sem hentar einkar vel ef fólk slysast til að versla sér eitthvað fallegt á ferðalaginu.

Nánari upplýsingar um WINGS ferðatöskur:

  •  Ytra byrði -Polyester
  •  Stærðir á hæstu punktum:
  •  Medium ferðataska: 18″ – 52x34x19 cm, 28 lítrar, 1,9kg
  •  4 tvöföld hjól með 360°snúning
  •  Talna lás
  •  Tveggja lenginga telescopic haldfang
  •  Vandað invols með hólfum og öryggis teygjum til þess að festa farangur
  •  Léttasta taskan frá Wings
  •  Tveggja ára verksmiðju ábyrgð
Ábyrgð:
Wings vörurnar eru með 24 mánaða verksmiðjuábyrgð. Hvort sem það er ytra eða innra byrði, allir gallar sem koma upp eru í ábyrgð ef um eðlilega notkun er að ræða.
Ábyrgðin gildir ekki um eftirfarandi:
  • Skemmdir sem verða á töskunni hvort sem um er að ræða óvart eða með ásetningi. T.d vegna bruna, skorið sé í töskuna, rifin eða almennt slit sem verður til við notkun.
  • Skemmdir sem verða á töskum í flugi eða við annan flutning. Þá skal hafa samband við viðkomandi flutningsaðila og fá töskuna bætta. (ATH það þarf að fylla út skýrslu á viðkomandi flugvelli ef taska skemmist í flugi!)
  • Litabreytingar vegna óhóflegrar UV geislunar af völdum sólar eða aðrar skemmdir af manna völdum.
Við erum með okkar eigið verkstæðis- og varahluta þjónustu, vinsamlegast hafið samband við starfsmann í síma 551-1040, einnig má senda tölvupóst á smartboutique@simnet.is

Wings Lorikeet handfarangur-small

24,500kr.

Wings ferðataska – small handfarangur

  • Unnar úr sterku Polyester.
Á lager
Síminn Pay Léttkaup
kr/mán
(m.v. mán)

mán.

Miðað við greiðslur á % vöxtum.

Aðeins % lántökugjald og kr. færslugjald á mánuði.

Árleg hlutfallstala kostnaðar: %.

Heildarkostnaður: kr.