Lúxus ferðatöskur frá fyrirtækinu WINGS hannaðar fyrir kröfuhörðustu viðskiptavinina. Nútímaleg hönnun, léttar töskur unnar úr sterku CODURA 1200D efni, með tveggja lenginga telescopic handfangi. Með gúmmí grip á utanverðu handfangi og styrkingu á hornum. Sterkar og endingagóðar töskur, með tveimur gúmmí hjólum fyrir stöðugleika og léttleika í allar áttir. Innvolsið er í ljósum lit og eru tveir góðir renndir vasar utan á.
- Ytra byrði – CODURA 1200D vatnsfráhrindandi efni
- Þykkir og traustir rennilásar
- Stærðir á hæstu punktum:
- Large ferðataska: 63x33x32 cm, 72l, 2,6kg
- 2 stór gúmmí hjól með stál legum
- Auka styrking á hornum
- Tveir rúmgóðir renndir vasar utan á
- Innbyggður duralumin rammi
- Tveggja lenginga telescopic handfang
- Góð handföng sem hægt er að festa saman með frönskum rennilás
- Harður botn
- Tveggja ára verksmiðju ábyrgð
Meira um ábyrgðina:
Takk fyrir að velja Wings ferðatöskur, við vonum að ferðatöskurnar frá okkur verði góður ferðafélagi um ókomin ár.
Notkun:
Notist á viðeigandi hátt. Fyllið ekki töskuna með þungum hlutum sem eru óreglulegir í laginu. Passið að pakka ferðatöskuna á sem jafnastan hátt. Ef að skemmdir verða á töskunni mælum við eindregið með að gert sé við hana hjá viðurkenndum viðgerðaraðila. Þrífið með mjúkum klút, vatni og sápu (hitastig 20-40°C).
Ábyrgð:
Wings vörurnar eru með 24 mánaða verksmiðjuábyrgð. Hvort sem það er ytra eða innra byrði, allir gallar sem koma upp eru í ábyrgð ef um eðlilega notkun er að ræða.
Ábyrgðin gildir ekki um eftirfarandi:
- Skemmdir sem verða á töskunni hvort sem um er að ræða óvart eða með ásetningi. T.d vegna bruna, skorið sé í töskuna, rifin eða almennt slit sem verður til við notkun.
- Skemmdir sem verða á töskum í flugi eða við annan flutning. Þá skal hafa samband við viðkomandi flutningsaðila og fá töskuna bætta. (ATH það þarf að fylla út skýrslu á viðkomandi flugvelli ef taska skemmist í flugi!)
- Litabreytingar vegna óhóflegrar UV geislunar af völdum sólar eða aðrar skemmdir af manna völdum.